[15:47]
Stefán Guðmundsson:
Virðulegi forseti. Ég vil að það komi fram við þessa atkvæðagreiðslu að ég hef fylgst með undirbúningi málsins úr ekki svo mikilli fjarlægð. Efasemdir mun ég áfram hafa um ákveðna þætti þessa samnings. En atkvæði mitt fellur með samningnum vegna jákvæðrar afstöðu Bændasamtaka Íslands til hans og því segi ég já.