[15:57]
Svavar Gestsson:
Virðulegi forseti. Þessi greinarhluti sem hér kemur til atkvæða er langsamlega alvarlegustu tíðindi þessa frv. Ég kvaddi mér hljóðs til þess að áskilja þingflokki mínum rétt til þess, þrátt fyrir tímanauð síðustu dagana fyrir jól, að taka þó nokkurn tíma í umræðu um þetta frv. vegna þess að 2. umr. lauk án þess að þessi þáttur málsins væri fullræddur.