[24:24]
Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Egilsson) (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég dáist nú alveg að bjartsýni hv. þm. sem hér hefur talað og ímyndað sér það að á miðju sumri gefist allt í einu tilefni til þess að hækka bætur um meira en 3% á meðan þing er ekki að störfum. Það eru fáir sem hafa sýnt jafnmikla tiltrú á efnahagsstefnu núv. ríkisstjórnar.