Ráðstafanir í ríkisfjármálum

Fimmtudaginn 21. desember 1995, kl. 10:26:47 (2280)

1995-12-21 10:26:47# 120. lþ. 74.4 fundur 225. mál: #A ráðstafanir í ríkisfjármálum# (breyting ýmissa laga) frv., StB (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 74. fundur


[10:26]

Sturla Böðvarsson:

Virðulegi forseti. Varðandi þá grein sem hér er verið að greiða atkvæði um og varðar Kvikmyndasjóð vil ég vekja athygli á því að framlög miðast við fjárlög eins og þau eru árið 1995. Ég vek sérstaka athygli á því og bendi hv. þm. á þær brtt. sem fela það í sér að framlög verða þau sömu og á þessu ári. Hv. þm. Alþfl. geta þá áttað sig á því að þeir samþykktu sömu upphæð vegna fjárlaga 1995 og hér er verið að fjalla um í væntanlegum fjárlögum. Ég segi já.