Ráðstafanir í ríkisfjármálum

Fimmtudaginn 21. desember 1995, kl. 11:13:30 (2300)

1995-12-21 11:13:30# 120. lþ. 74.4 fundur 225. mál: #A ráðstafanir í ríkisfjármálum# (breyting ýmissa laga) frv., ÖJ (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 74. fundur


[11:13]

Ögmundur Jónasson:

Hæstv. forseti. Hér er verið að gera breytingu á viðmiðun lífeyris- og tryggingabóta og er nú skírskotað til launa, verðlags og efnahagsþróunar. Ég geng út frá því að þessi breyting muni ekki hafa í för með sér neina skerðingu frá fyrra fyrirkomulagi og einvörðungu á þeirri forsendu segi ég já.