[20:57]
Frsm. meiri hluta fjárln. (Jón Kristjánsson) (andsvar):
Herra forseti. Ég mun vissulega gera grein fyrir þessu máli þegar ég flyt framsöguræðu fyrir frv. til fjárlaga á eftir og þá í heild sinni. En það er rétt að samkomulag sem formaður og varaformaður fjárln. unnu í samráði við fjmrn. og heilbrrn. um þetta mál gerði ráð fyrir að rekstrarmál þessara stofnana yrðu tekin til sérstakrar meðferðar. Ég ætla ekki að gera því ítarleg skil í andsvari en ég mun gera grein fyrir þeim málum nánar í framsöguræðu við fjárlagafrv. sjálft. Þar er fjallað um framtíðina í þessum efnum þótt vissulega sé fjáraukalagafrv. liður í aðgerðum sem fyrirhugaðar eru þarna suður frá.