Ferill 135. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1995. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 135 . mál.


326. Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr. 48/1992, um breyt. á l. nr. 65/1992, um skattskyldu innlánsstofnana, með síðari breytingum.

Frá efnahags- og viðskiptanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið. Á fund nefndarinnar komu frá fjármálaráðuneyti Indriði H. Þorláksson, Bolli Þór Bollason, Bragi Gunnarsson og Maríanna Jónasdóttir og frá embætti ríkisskattstjóra Steinþór Haraldsson. Þá fékk nefndin sendar umsagnir um málið frá iðnþróunarsjóði, Verslunarráði Íslands og Sambandi íslenskra viðskiptabanka.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Alþingi, 12. des. 1995.



Vilhjálmur Egilsson.

Ágúst Einarsson.

Sólveig Pétursdóttir.


form., frsm.



Gunnlaugur M. Sigmundsson.

Jón Baldvin Hannibalsson.

Pétur H. Blöndal.



Steingrímur J. Sigfússon.

Einar Oddur Kristjánsson.

Drífa Sigfúsdóttir.