Ferill 241. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1995. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 241 . mál.


427. Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr. 24/1994, um Þróunarsjóð sjávarútvegsins, sbr. lög nr. 21/1995.

Frá meiri hluta sjávarútvegsnefndar.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fékk á fund til sín Arndísi Steinþórsdóttur frá sjávarútvegsráðuneyti, Hinrik Greipsson frá Þróunarsjóði sjávarútvegsins og Örn Pálsson frá Landssambandi smábátaeigenda.
    Meiri hluti nefndarinnar leggur til að frumvarpið verði samþykkt með svofelldum

BREYTINGUM:



    Við 2. gr. Greinin orðist svo:
    Ákvæði til bráðabirgða III í lögunum orðast svo:
    Sjávarútvegsráðherra er, þrátt fyrir ákvæði 7. gr., heimilt að ákveða að til ársloka 1996 skuli styrkur vegna úreldingar krókabáta vera hærra hlutfall af húftryggingarmati en gildir um önnur skip. Jafnframt er heimilt að ákveða að til 1. október 1996 geti úreldingarstyrkur vegna krókabáta numið að hámarki 80% af húftrygginarverðmæti. Á sama tímabili er Þróunarsjóði heimilt að kaupa krókabáta sem hafa verið úreltir. Getur sjóðurinn m.a. notað þá til þróunarverkefna erlendis.
    Ef ákveðið verður að greiða úreldingarstyrki skv. 1. mgr. skal endurreikna styrki til þeirra krókabáta sem þegar hafa fengið greidda styrki til samræmis við hinar breyttu reglur.

    Annars vegar er hér lagt til að Þróunarsjóði sjávarútvegsins verði heimilt að kaupa krókabóta sem hafa verið úreltir, m.a. til að nýta í þróunarverkefnum erlendis. Meiri hlutinn vill taka fram að með þessu er ekki verið að hrófla við heimildum til að nýta úrelta fiskibáta til annarrar starfsemi, svo sem ferðamannaþjónustu eða sportveiða. Hins vegar er lagt til að sérstaklega verði tekið fram að ef ákveðið verður að nýta heimild ákvæðisins til hækkunar á úreldingarstyrkjum skuli sú hækkun einnig ná til þeirra krókabáta sem þegar hafa fengið styrk.

Alþingi, 19. des. 1995.



Árni R. Árnason,

Stefán Guðmundsson.

Vilhjálmur Egilsson.


varaform., frsm.



Hjálmar Árnason.

Einar Oddur Kristjánsson.

Guðmundur Hallvarðsson.