Ferill 102. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1995–96. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 102 . mál.


563. Nefndarálit



um frv. til l. um löggildingu nokkurra starfsheita sérfræðinga í tækni- og hönnunargreinum.

Frá iðnaðarnefnd.



    Nefndin hefur fjallað um frumvarpið og fengið á sinn fund Jón Ögmund Þormóðsson, skrifstofustjóra í iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu, og Hörð Lárusson, deildarstjóra í menntamálaráðuneytinu. Umsagnir bárust frá Arkitektafélagi Íslands, Félagi skipulagsfræðinga, Stéttarfélagi verkfræðinga, Tæknifræðingafélagi Íslands og Verkfræðingafélagi Íslands, auk þess sem nefndin hafði til skoðunar umsagnir frá 118. þingi.
    Ein meginástæða fyrir flutningi þessa frumvarps er að breyta þarf núgildandi löggjöf vegna þeirra skuldbindinga sem leiðir af EES-samningnum. Einnig munu með samþykkt frumvarpsins gilda samræmdar reglur, í einum og sama lagabálki, um hver hafi rétt til að nota starfsheiti sem falla undir svið iðnaðarráðuneytisins, þar sem því er ætlað að leysa af hólmi lög nr. 62/1986, um rétt manna til að kalla sig verkfræðinga, húsameistara, landslagshönnuði, húsgagna- og innanhússhönnuði, tæknifræðinga eða byggingafræðinga, og lög nr. 46/1982, um rétt manna til að kalla sig iðnfræðinga. Jafnframt gerir frumvarpið ráð fyrir því að starfsheitið skipulagsfræðingur verði lögfest.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Alþingi, 13. febr. 1996.



Stefán Guðmundsson,

Guðjón Guðmundsson.

Svavar Gestsson.


form., frsm.



Árni R. Árnason.

Sigríður A. Þórðardóttir.

Pétur H. Blöndal.



Guðmundur Árni Stefánsson.