Ferill 385. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1995–96. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 385 . mál.


947. Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr. 32/1986, um varnir gegn mengun sjávar, með síðari breytingum.

Frá umhverfisnefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Magnús Jóhannesson, ráðuneytisstjóra í umhverfisráðuneytinu, og Helga Jensson frá mengunarvörnum sjávar hjá Hollustuvernd ríkisins.
    Frumvarpið felur í sér breytingar á lögum um varnir gegn mengun sjávar sem nauðsynlegar eru vegna alþjóðlegra skuldbindinga Íslendinga. Í fyrsta lagi er um að ræða breytingu er snýr að því að taka af öll tvímæli um að íslensk lög um mengunarvarnir nái ekki einungis til íslensku efnahagslögsögunnar heldur einnig til starfsemi íslenskra skipa utan íslenskrar efnahagslögsögu. Í öðru lagi er um að ræða atriði sem nauðsynlegt er að breyta til að unnt sé að staðfesta OSPAR-samninginn um varnir gegn mengun hafrýmis Norður-Atlantshafsins. Einnig er um að ræða breytingar er lúta að því að tryggð verði samræmd viðbrögð við mengunaróhöppum á sjó, svo og notkun mengunarvarnabúnaðar. Þá felur frumvarpið einnig í sér heimild fyrir ráðherra til að setja gjaldskrá fyrir mengunarvarnabúnaðinn. Loks er um að ræða breytingar sem rekja má til flutnings mengunardeildar Siglingamálastofnunar ríkisins til Hollustuverndar ríkisins.
    Umhverfisnefnd leggur til að frumvarpið verði samþykkt með breytingum sem gerð er tillaga um á sérstöku þingskjali. Annars vegar er um að ræða breytingar sem gerðar eru með hliðsjón af breytingum sem nýsett lög um Siglingastofnun Íslands hafa í för með sér. Hins vegar er lagt til að felld verði niður heimild Hollustuverndar til að veita leyfi til að skipum eða loftförum verði varpað í hafið, en í frumvarpinu var lagt til að heimilt yrði að veita slíkt leyfi fram til 31. desember 2004.


Alþingi, 10. maí 1996.



Ólafur Örn Haraldsson,

Árni M. Mathiesen.

Gísli S. Einarsson.


form., frsm.



Katrín Fjeldsted.

Hjörleifur Guttormsson.

Ísólfur Gylfi Pálmason.



Kristín Halldórsdóttir.