Ferill 408. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1995–96. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 408 . mál.


1054. Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. um fjarskipti, nr. 73 28. maí 1984, sbr. lög nr. 32 14. apríl 1993.

Frá minni hluta samgöngunefndar.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á fund til sín Guðmund Ólafsson frá Fjarskiptaeftirlitinu, Sigurgeir H. Sigurgeirsson frá samgönguráðuneyti og Andra Árnason hrl.
    Frumvarpið var lagt fram sem fylgifrumvarp með 331. máli, um stofnun hlutafélags um rekstur Póst- og símamálastofnunar. Vísað er til nefndarálits undirritaðra um það mál og lagt til að frumvarpinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar.
    Kristín Halldórsdóttir sat fundi nefndarinnar sem áheyrnarfulltrúi og er hún samþykk áliti þessu.

Alþingi, 23. maí 1996.



Guðmundur Árni Stefánsson,

Ragnar Arnalds.

Ásta R. Jóhannesdóttir.


frsm.