Ferill 527. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


120. löggjafarþing 1995–1996.
Nr. 15/120.

Þskj. 1168 —  527. mál.


Þingsályktun

um staðfestingu þriggja samninga um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum.


    Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd eftirtalda samninga um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum sem gerðir voru í Ósló 6. maí 1996:
     1.     Bókun um verndun, skynsamlega nýtingu og stjórnun veiða á norsk-íslenska síldarstofninum í Norðaustur-Atlantshafi.
     2.     Samning milli Íslands og Noregs um veiðiheimildir innan íslenskrar lögsögu og lögsögu Jan Mayen á árinu 1996.
     3.     Samning milli Íslands og Rússlands um veiðiheimildir innan íslenskrar lögsögu á árinu 1996.

Samþykkt á Alþingi 3. júní 1996.