Grunnskólar

Þriðjudaginn 28. janúar 1997, kl. 17:18:20 (2807)

1997-01-28 17:18:20# 121. lþ. 56.4 fundur 254. mál: #A grunnskólar# (námsleyfasjóður) frv., menntmrh. (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 56. fundur

[17:18]

Menntamálaráðherra (Björn Bjarnason):

Herra forseti. Frumvarp þetta er flutt að ósk stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga. Skv. 25. gr. laga nr. 66/1995, um grunnskóla, greiða sveitarfélög framlag í sérstakan sjóð til þess að standa straum af launum kennara og skólastjóra við grunnskóla vegna námsleyfa allt að einu ári.

Í lögum nr. 66/1995, um grunnskóla, og í samningum milli ríkis og sveitarfélaga um flutning grunnskólans til sveitarfélaganna var gert ráð fyrir að halda óbreyttum möguleikum kennara og skólastjórnenda til námsleyfa vegna viðbótarnáms og endurmenntunar. Að jafnaði hefur verið unnt að veita um 30 námsleyfi á ári, en umsóknir hafa yfirleitt verið þrefalt til fjórfalt fleiri. Í sama mund og sveitarfélög tóku við grunnskólum, 1. ágúst 1996, hófu 30 kennarar og skólastjórar námsleyfi sem veitt voru í lok árs 1995.

Við setningu grunnskólalaganna var miðað við að 1% af dagvinnulaunum dygði til að halda fjölda námsleyfa óbreyttum eftir flutning grunnskólans eða um 30 námsleyfi á ári. Komið hefur í ljós að þessi viðmiðun er of lág. Til að halda óbreyttum fjölda námsleyfa á ári eftir flutning grunnskólans til sveitarfélaganna þarf viðmiðunartalan að vera 1,3%. Af hálfu Sambands íslenskra sveitarfélaga er viðurkennt að við ákvörðun um tekjustofna vegna flutnings grunnskólans til sveitarfélaganna hafi verið reiknað með 30 námsleyfum. Breytingin sem hér er lögð til á 25. gr. grunnskólalaganna leiðir því ekki til aukins kostnaðar fyrir ríkissjóð heldur er um að ræða leiðréttingu til að tryggja lagagrundvöll fyrir námsleyfasjóð á vegum sveitarfélaga.

Í 1. gr. er lagt til að viðmiðunartala fyrir framlag sveitarfélaga í námsleyfasjóð verði hækkuð úr 1% af dagvinnulaunum kennara og skólastjóra í 1,3%.

Ég legg þetta frv. hér fram með ósk um að því verði vísað til hv. menntmn. og 2. umr.