Túlkaþjónusta fyrir heyrnarlausa

Miðvikudaginn 29. janúar 1997, kl. 13:47:08 (2819)

1997-01-29 13:47:08# 121. lþ. 57.1 fundur 194. mál: #A túlkaþjónusta fyrir heyrnarlausa# fsp. (til munnl.) frá félmrh., félmrh. (svar)
[prenta uppsett í dálka] 57. fundur

[13:47]

Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson):

Herra forseti. Ég ætla ekki hér og nú að gefa fyrirheit um fjárveitingar til verkefnisins. En að sjálfsögðu munum við reyna að leysa úr bráðum vanda sem kann að skapast og reyna að finna til þess fjármuni. Hitt er annað mál, eins og komið hefur fram, að ekki er sérmerkt fjárveiting á fjárlögum til þessa verkefnis.