Rannveig Guðmundsdóttir (um atkvæðagreiðslu):
Virðulegi forseti. Vegna þessarar umræðu vil ég taka fram að okkar fulltrúar í iðnn. fóru mjög vel í gegnum stöðu málsins í þingflokki jafnaðarmanna og í trúnaði fjölluðu um það samkomulag sem gert hefur verið. Ég veit ekki hvað aðrir fulltrúar í iðnn. hafa gert en þingflokki jafnaðarmanna er mjög vel kunnugt um innihald samkomulagsins.