Svanhildur A. Kaaber fyrir ÖJ

Mánudaginn 17. febrúar 1997, kl. 15:02:17 (3501)

1997-02-17 15:02:17# 121. lþ. 71.95 fundur 198#B Svanhildur A. Kaaber fyrir ÖJ#, Forseti ÓE
[prenta uppsett í dálka] 71. fundur

[15:02]

Forseti (Ólafur G. Einarsson):

Borist hefur svohljóðandi bréf:

,,Þar sem ég get ekki sótt þingfundi á næstunni vegna sérstakra anna leyfi ég mér, með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis, að óska þess að 3. varaþm. Alþb. og óháðra í Reykjavíkurkjördæmi, Svanhildur Kaaber kennari, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni þar sem 1. og 2. varaþingmaður listans sitja nú á Alþingi.

Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti,

Ögmundur Jónasson, 17. þm. Reykv.``

Kjörbréf Svanhildar Kaaber hefur verið rannsakað og samþykkt. Hún hefur ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því að undirrita drengskaparheit að stjórnarskránni.