Ásta R. Jóhannesdóttir (andsvar):
Herra forseti. Í umræðunni um þessa grein kom fram að túlka mætti greinina sem skerðingu eins og hún er orðuð. Ég held því að við þyrftum að athuga þessa grein enn betur í nefndinni þegar málið kemur þangað og skoða hvort hér þurfi að verða einhverjar breytingar á orðalagi.