Guðný Guðbjörnsdóttir (andsvar):
Herra forseti. Vegna ræðu hv. þm. Hjálmars Jónssonar um sjálfsvíg þá er mjög mikilvægt að við áttum okkur á að t.d. þetta kynjamynstur sem hér kemur fram, það kemur fram alls staðar í heiminum og einnig að það er yfirleitt mikil fjölgun núna í löndunum í kringum okkur á sjálfsvígstíðni ungra pilta. Því held ég að það sé mikilvægt að við áttum okkur á að þetta eru ekki bara íslenskir drengir hér og nú heldur er þetta partur af stærra samhengi.