Hjálmar Jónsson (andsvar):
Herra forseti. Það var aðeins ábending sem ég gerði hér varðandi þessar niðurstöður sem mér þóttu athyglisverðar og vildi því minnast á en hitt er annað mál að í till. til þál. sem ég lagði fram í þinginu fyrir fimm árum var þetta allt tíundað og einmitt að það eru sláandi tölur um tíðni sjálfsvíga hjá ungum karlmönnum. Hjá okkur hefur aukningin verið gífurlega mikil á undanförnum tveimur áratugum. En það er líka rétt sem hv. þm. sagði að þetta er vandi sem er mjög vaxandi í vestrænum þjóðfélögum og þarf að bregðast ákveðnar við en hingað til hefur verið gert.