Starfsemi og nám í stýrimannaskólum

Miðvikudaginn 26. febrúar 1997, kl. 14:52:59 (3980)

1997-02-26 14:52:59# 121. lþ. 78.6 fundur 372. mál: #A starfsemi og nám í stýrimannaskólum# fsp. (til munnl.) frá menntmrh., GHall (ber af sér sakir)
[prenta uppsett í dálka] 78. fundur

[14:52]

Guðmundur Hallvarðsson:

Virðulegi forseti. Hvað svo sem hv. 8. þm. Reykv. vill segja hér og vitna til fyrri skrifa þingtíðinda, þá held ég að ég geti alveg eins og miklu frekar vísað til fyrri tilskrifa minna í blöðum, fjölmargar blaðagreinar um þetta mál. Og ef afstaða mín kemur hv. 8. þm. Reykv. á óvart, þá þykir mér það bara miður að vita af því að þáv. alþm. og núv. hafi ekki fylgst eins vel með þjóðmálum og ekki þá með málefnum siglingaþjóðarinnar Íslendinga og fiskveiðiþjóðarinnar eins og hún hefði kannski átt að gera. En mín afstaða í þessu máli orkar ekki tvímælis og hefur ekki gert.