Viðskiptaráðherra (Finnur Ingólfsson) (um fundarstjórn):
Herra forseti. Það er ljóst að hér er um stjórnarfrv. að ræða. Hér eru engin ný tíðindi á ferðinni. Það var löngu vitað áður en þetta frv. var lagt fram að einn þingmaður Framsfl., hv. þm. Gunnlaugur Sigmundsson, hafði athugasemdir við málið og var í andstöðu við það. Hér eru engin tíðindi að gerast.