Járnblendiverksmiðja í Hvalfirði

Fimmtudaginn 03. apríl 1997, kl. 12:28:29 (4928)

1997-04-03 12:28:29# 121. lþ. 98.6 fundur 475. mál: #A járnblendiverksmiðja í Hvalfirði# (eignaraðild, stækkun) frv., KH (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 98. fundur

[12:28]

Kristín Halldórsdóttir (andsvar):

Herra forseti. Hæstv. iðnrh. kemur fram með alveg nýjar upplýsingar í andsvari sínu. Þetta kom ekki fram í ræðu hans áðan. Þetta er ekki að finna í grg. með frv. en hamingjan láti gott á vita ef svo er. Í fyrsta lagi vil ég fagna því að hæstv. iðnrh. hafi gert þessa kröfu til fyrirtækisins en ég skildi það ekki alveg af hans máli hvort fyrirtækið ætlaði að verða við kröfunni eða hvort þetta lægi enn þá á milli hluta. En sé það svo að þarna fari fram umhverfismat þá ber að fagna því og ég vil þakka hæstv. iðnrh. fyrir þessar upplýsingar. Þetta er alltént innlegg í málið.