Ögmundur Jónasson:
Hæstv. forseti. Hér er gert ráð fyrir því að starfsmenn geti fylgst með og haft áhrif á allan gang mála við breytingu ríkisbankanna í hlutafélög. Afstaða ríkisstjórnarinnar til atvinnulýðræðis og áhrifa starfsfólks kemur mér ekki á óvart. En það er mjög mikilvægt að lýðum verði ljós afstaða alþingismanna almennt við afgreiðslu þessarar lagagreinar því að hún snertir sjálfan grundvöll atvinnulýðræðis. Ég segi já.