1997-05-13 00:52:53# 121. lþ. 122.20 fundur 408. mál: #A Fjárfestingarbanki atvinnulífsins hf.# frv., Frsm. 1. minni hluta VE (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 122. fundur

[24:52]

Frsm. 1. minni hluta efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Egilsson) (andsvar):

Hæstv. forseti. Það má kannski segja að það sé trú stjórnarliðanna á stjórnarandstöðunni að þora ekki að gera áætlanir um hverjum eigi að selja hlutabréfin fyrr en búið er að afgreiða frv. sem lög frá Alþingi. Ég get fullvissað hv. þm. um það að eftir að búið verður að selja bréfin, vonandi sem allra flestum, þá verða það örugglega miklir vinir ríkissjóðs sem eiga saman með honum í þessum banka.