Svavar Gestsson:
Herra forseti. Þetta frv. staðfestir það sem við vorum að gagnrýna við hið síðasta að það er ekki verið að taka á skipulagsvanda bankakerfisins í heild. Hér er á ferðinni frv. um að stofna nýjan ríkisbanka. Það hefur komið fram að allir sem vit hafa á þessum málum í þjóðfélaginu leggjast gegn þessu frv., allir. Þeir einu sem styðja málið eru þeir sem fá að tilnefna menn í stjórn bankans. Þeir sem eru aðilar að klíkuveldi stjórnarflokkanna styðja málið af því að þeirra hagsmunir eru tryggðir. Við erum andvíg þessu máli og greiðum atkvæði á móti því.