Ágúst Einarsson:
Herra forseti. Nýsköpunarfrv. ríkisstjórnarinnar er illa útfært. Við í þingflokki jafnaðarmanna studdum tvær greinar þessa frv. við fyrri umræðu, þar sem lýst var yfir stuðningi við nýsköpun. Hins vegar er málið í þessum búningi eftir sem áður þannig úr garði gert að það nær ekki þeim góðu markmiðum um eflingu nýsköpunar sem við styðjum. Við sitjum því hjá við lokaafgreiðslu málsins.