Efling iðnaðar sem nýtir ál við framleiðslu sína

Þriðjudaginn 13. maí 1997, kl. 13:00:40 (6295)

1997-05-13 13:00:40# 121. lþ. 123.42 fundur 447. mál: #A efling iðnaðar sem nýtir ál við framleiðslu sína# þál., Frsm. StG (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 123. fundur

[13:00]

Frsm. iðnn. (Stefán Guðmundsson):

Virðulegi forseti. Ég tala hér fyrir nál. iðn. sem liggur fyrir á þskj. 1165 en það er till. til þál. um átaksverkefni til eflingar iðnaði sem nýtir ál við framleiðslu sína.

Í álitinu segir svo:

Nefndin hefur fjallað um tillöguna og fengið umsagnir frá Útflutningsráði Íslands, Íslenska álfélaginu hf., Samtökum iðnaðarins, Sambandi iðnmenntaskóla og verkfræðideild Háskóla Íslands.

Verkfræðideild háskólans fagnar efni tillögunnar og bendir á mikilvægi þess að auka rannsóknir á þessu sviði. Samtök iðnaðarins benda á þann möguleika að í stað þess að efna til sérstaks átaks eins og tillagan gerir ráð fyrir verði frekar efnt til samstarfs við þau fyrirtæki íslensk sem þegar nýta ál í framleiðslu sinni, með sérstöku verkefni undir merkjum Átaks til atvinnusköpunar um frekari úrvinnslu á áli. Nefndin telur þetta réttmæta ábendingu og telur að orðalag tillögugreinarinnar komi ekki í veg fyrir að þessi leið verði valin. Þá vekur nefndin athygli á því að nefnd á vegum iðnaðarráðuneytisins vinnur að úttekt á úrvinnslu áls og annarra léttmálma og kann efni þessarar ályktunar að falla saman við þá vinnu.

Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.

Undir þetta rita iðnaðarnefndarmenn og var samstaða þar um afgreiðslu málsins, en það eru Stefán Guðmundsson, Guðjón Guðmundsson, Svavar Gestsson, Sigríður A. Þórðardóttir, Sighvatur Björgvinsson, Árni R. Árnason, Pétur H. Blöndal, Hjálmar Árnason og Jóhanna Sigurðardóttir.