![](http://www.althingi.is/myndir/althlit.gif)
Frsm. meiri hluta allshn. (Sólveig Pétursdóttir) (andsvar):
Virðulegi forseti. Þessi álitaefni hafa verið rædd í allshn. og m.a. lögð fyrir okkar gesti og þá sem við leituðum eftir álitsgerðum hjá. Ég held að þau gögn liggi fyrir í nál. og álitsgerðum í þessu máli þannig að ég held að ég hafi engu við það að bæta.