Guðmundur Hallvarðsson:
Herra forseti. Að veita útgerðarmönnum rétt til veðsetningar kvótans er þvert á áður sett lagaákvæði um að auðlindirnar í hafinu séu sameign þjóðarinnar. Þetta ákvæði mun enn fremur veita þeirri óáran brautargengi sem því miður hefur allt of lengi gengið í viðskiptum milli útgerðarmanna með kvótann. Ég segi nei.