Frsm. meiri hluta landbn. (Guðni Ágústsson) (andsvar):
Hæstv. forseti. Miðað við þær breytingar sem hafa orðið á seinni árum með meira frelsi í verði landbúnaðarafurða þá var það kannski að hluta til líka svona með sjóðagjöld sem féllu á heildsöluverð að í sumum tilfellum má segja það sama þar að þær hafa að hluta til komið á launalið.
En ég trúi því og endurtek að þetta gjald verði landbúnaðinum til farsældar og treysti því að menn nái að þróa það þannig að allir verði sáttir við það.