Búnaðargjald

Fimmtudaginn 15. maí 1997, kl. 15:05:34 (6627)

1997-05-15 15:05:34# 121. lþ. 127.5 fundur 478. mál: #A búnaðargjald# (heildarlög) frv., Frsm. minni hluta LB (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 127. fundur

[15:05]

Frsm. minni hluta landbn. (Lúðvík Bergvinsson) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er kannski ekki ástæða til að lengja þessa umræðu mikið umfram það sem komið er en ég fagna yfirlýsingu hæstv. landbrh. um það að hann sé tilbúinn að skoða það að leggja Framleiðsluráð niður og færa verkefni þess til annarra stofnana enda held ég, virðulegi forseti, að kostnaður við þessa stofnun hljóti að vera kominn út yfir allan þjófabálk þegar hann er orðinn álíka mikill og rekstur á því ráðuneyti sem fer með sjávarútvegsmál.