Búnaðargjald

Fimmtudaginn 15. maí 1997, kl. 15:06:11 (6628)

1997-05-15 15:06:11# 121. lþ. 127.5 fundur 478. mál: #A búnaðargjald# (heildarlög) frv., landbrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 127. fundur

[15:06]

Landbúnaðarráðherra (Guðmundur Bjarnason) (andsvar):

Hæstv. forseti. Það sem stóð í mér áðan var það að hv. þm. nefndi að Framleiðsluráðið byggi yfir stórum sjóðum, sem eru að hluta til komnir vegna mikilla umsýsluverkefna og fjármuna sem Framleiðsluráð hafði hér áður en hefur ekki lengur. Sú sjóðamyndun er því trúlega ekki fyrir hendi í dag auk þess sem það kom líka fram í tölulegum upplýsingum hv. þm. í morgun að útgjöldin eru hærri í dag en tekjur ráðsins. Ráð heldur því a.m.k. ekki áfram að safna upp sjóðum heldur er trúlega að ganga á sína sjóði.