Samningsveð

Laugardaginn 17. maí 1997, kl. 13:17:42 (6860)

1997-05-17 13:17:42# 121. lþ. 130.11 fundur 234. mál: #A samningsveð# frv., GHall (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 130. fundur

[13:17]

Guðmundur Hallvarðsson:

Herra forseti. Ég hef áður lýst afstöðu minni til 4. mgr. 3. gr. frv. til laga um samningsveð sem er að flestöllu leyti jákvæð. Þegar litið er til þess að íslensku veðlögin frá 1887 hafa engum breytingum tekið á svo löngum tíma tel ég að þetta sé af hinu góða þó með þeirri undantekningu eins og ég hef áður gert grein fyrir og verið á móti 4. mgr. 3. gr. Því tek ég þann kost að þessu sinni að sitja hjá.