Magnús B. Jónsson fyrir PP

Miðvikudaginn 09. október 1996, kl. 13:31:46 (169)

1996-10-09 13:31:46# 121. lþ. 5.95 fundur 41#B varamaður tekur þingsæti#, Forseti ÓE
[prenta uppsett í dálka] 5. fundur

[13:31]

Forseti (Ólafur G. Einarsson):

Borist hefur svofellt bréf:

,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að 2. varaþingmaður Framsfl. í Norðurl. v., Magnús B. Jónsson, sveitarstjóri, Skagaströnd, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni og forföllum 1. varaþingmanns flokksins í Norðurl. v.

Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.

Páll Pétursson, 1. þm. Norðurl. v.``

Þá hefur borist svofellt bréf:

,,Vegna sérstakra anna sé ég mér ekki fært að taka sæti Páls Péturssonar, 1. þm. Norðurl. v., á Alþingi sem 1. varaþingmaður Framsfl. í Norðurl. v.

Virðingarfyllst,

Elín R. Líndal.``

Kjörbréf Magnúsar B. Jónssonar hefur verið rannsakað og samþykkt. Hann hefur ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því að undirrita drengskaparheit að stjórnarskránni.