Petrína Baldursdóttir fyrir RG og Kristinn Pétursson fyrir EgJ

Fimmtudaginn 17. október 1996, kl. 10:34:30 (392)

1996-10-17 10:34:30# 121. lþ. 10.95 fundur 45#B Petrína Baldursdóttir fyrir RG og Kristinn Pétursson fyrir EgJ#, Forseti StB
[prenta uppsett í dálka] 10. fundur

[10:34]

Forseti (Sturla Böðvarsson):

Borist hefur svofellt bréf:

,,Þar sem ég er á förum til útlanda og get því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með tilvísun til 2. mgr. 53 gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að 1. varaþingmaður Alþfl. í Reykjaneskjördæmi, Petrína Baldursdóttir, fyrrv. alþm., taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.

Rannveig Guðmundsdóttir.``

Petrína Baldursdóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili og er boðin velkomin til starfa á ný.

Þá hefur enn fremur borist annað bréf:

,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að 1. varaþingmaður Sjálfstfl. í Austurlandskjördæmi, Kristinn Pétursson fiskverkandi, Bakkafirði, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.

Egill Jónsson.``

Kjörbréf Kristins Péturssonar hefur verið samþykkt. Hann hefur áður átt sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa á ný.