Svavar Gestsson (andsvar):
Hæstv. forseti. Ég þakka fyrir þessa ábendingu en ég gleymdi að nefna það áðan að lyftur í Kirkjustrætishúsinu eru örugglega fyrir fatlaða. Það held ég að sé alveg á hreinu og það er mikilvægt að hafa það í huga í sambandi við frágang þessara húsa. Það skiptir miklu máli og það á ekki að gera grín að því úr þessum ræðustól, jafnvel þó það kosti peninga.