Langtímaáætlun í vegamálum

Mánudaginn 28. október 1996, kl. 15:21:19 (506)

1996-10-28 15:21:19# 121. lþ. 11.2 fundur 48#B langtímaáætlun í vegamálum# (óundirbúin fsp.), samgrh.
[prenta uppsett í dálka] 11. fundur

[15:21]

Samgönguráðherra (Halldór Blöndal):

Herra forseti. Ég vil ítreka það sem ég sagði áðan að ég tel að reynslan af þeim undirbúningi hafi ekki verið góð. Ég tel að ríkisstjórnin eigi að bera ábyrgð á þeim málum sem hún leggur fyrir þingið. Á hinn bóginn kemur síðan til kasta samgn. sem er kjörin af Alþingi að vinna úr málinu eftir að það hefur verið lagt fram. Ég hef því í hyggju að vinna að málinu með þeim hætti.