Forseti (Ólafur G. Einarsson):
Sem svar við þessari fyrirspurn þá stendur það hvergi í þingsköpum að ráðherra ljúki umræðunni. En það hefur hver þingmaður leyfi til þess að tala tvisvar í utandagskrárumræðu og venjan er sú að þeir ljúka umræðunni, málshefjandi og viðkomandi ráðherra sem svarar.