Forseti (Sturla Böðvarsson):
Um þinghaldið í dag vill forseti taka fram að fyrst fer fram atkvæðagreiðsla um 1. dagskrármálið. Að henni lokinni verður umræða utan dagskrár um stöðu jafnréttismála og mun hún standa í allt að tvo tíma. Eftir þá umræðu verður tekið til við þau mál sem eru á dagskrá fundarins, þ.e. 2.--4. dagskrármál.