Landsvirkjun

Fimmtudaginn 21. nóvember 1996, kl. 21:46:51 (1598)

1996-11-21 21:46:51# 121. lþ. 30.4 fundur 175. mál: #A Landsvirkjun# (arðgreiðslur, skipun stjórnar o.fl.) frv., iðnrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 30. fundur

[21:46]

Iðnaðarráðherra (Finnur Ingólfsson) (andsvar):

Herra forseti. Í gildandi lögum er ákvæði um jöfnun orkuverðs, að orkuverðið skuli vera það sama á afhendingarstöðum. Þetta frv. sem hér liggur fyrir gerir engar breytingar á þeim ákvæðum þannig að ekki er hægt með neinu móti að halda því fram að það standi til með því samkomulagi sem hefur náðst milli eignaraðila eða því frv. sem hér liggur fyrir til umræðu, og er til þess að staðfesta þetta samkomulag, að breyta jöfnun orkuverðs. Það er einfaldlega ekki rétt.