![](http://www.althingi.is/myndir/althlit.gif)
Sólveig Pétursdóttir:
Virðulegi forseti. Aðeins örstutt athugasemd vegna orða hv. þm. Svavars Gestssonar. Fyrir allshn. hefur legið frv. til laga um breytingu á hegningarlögum um vernd gegn mismunun og fjallar um þetta efni er hann benti á. Allshn. hefur nú lokið meðferð á þessu máli þannig að nefndarálit er væntanlegt fljótlega hér í þingsal.