Frsm. efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Egilsson):
Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir brtt. á þskj. 273 við frv. til laga um breytingu á lögum nr. 48/1994, um brunatryggingar, með síðari breytingum. Í meðferð málsins þegar gerð var brtt. í efh.- og viðskn. hafa tvö gjöld sem heita viðlagatryggingariðgjald og álag á viðlagatryggingariðgjald misritast og með þessari brtt. er verið að leiðrétta það.