Vilhjálmur Egilsson:
Hæstv. forseti. Þessi tillaga er lögð fram í nafni hins þögla meiri hluta sem ekur eftir vegum landsins á meira en 90 km hraða að meðaltali. Ég geri mér grein fyrir því að hér í þessum þingsal er ég vinafár en á þjóðvegum landsins eru vinirnir þess fleiri. Ég geri mér líka grein fyrir því að hinn hægfara meiri hluti í þessum sal mun einhvern tíma þurfa að herða ferðina. Ég segi já.