Sighvatur Björgvinsson:
Virðulegi forseti. Út af orðum forseta um að taka á dagskrá frv. til laga um veiðar utan fiskveiðilögsögunnar, þá vil ég spyrjast fyrir um hvort það sé ekki alveg öruggt að hæstv. sjútvrh. verði viðstaddur þá umræðu. Hann var með veikindaleyfi á Alþingi í gær og ég óska eftir því að umræðan fari ekki fram nema að viðstöddum hæstv. ráðherra.