Fjárlög 1997

Laugardaginn 14. desember 1996, kl. 11:27:28 (2221)

1996-12-14 11:27:28# 121. lþ. 44.1 fundur 1. mál: #A fjárlög 1997# frv., ÁE (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 44. fundur

[11:27]

Ágúst Einarsson:

Herra forseti. Hér kemur til atkvæða brtt. þingflokks jafnaðarmanna um að hækka framlag til Kvikmyndasjóðs um 70 millj. kr. Við teljum brýnt að auka framlög í þennan málaflokk og tillaga meiri hluta fjárln. um 25 millj. kr. hækkun gengur ekki nógu langt að okkar mati. Jafnaðarmenn hafa jafnframt lagt fram breytingartillögur við þetta fjárlagafrv. til tekjuöflunar fyrir öllum okkar útgjaldatillögum. Aukin framlög til kvikmynda eru mjög arðbær fyrir ríkissjóð og samfélagið allt.