Tryggingagjald

Þriðjudaginn 17. desember 1996, kl. 13:42:57 (2291)

1996-12-17 13:42:57# 121. lþ. 46.1 fundur 145. mál: #A tryggingagjald# (gjaldhlutfall) frv. 156/1996, ÁE (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 46. fundur

[13:42]

Ágúst Einarsson:

Herra forseti. Í þessari brtt. er kveðið á um markaðan tekjustofn til tveggja tiltekinna stofnana, Staðlaráðs og Icepro. Við í þingflokki jafnaðarmanna erum alfarið á móti því að taka upp markaðan tekjustofn með þessum hætti. Með þessu er tilteknum stofnunum og fyrirtækjum veittur forgangur fram yfir önnur sem síðar kynnu að hasla sér völl á þessu sviði. Þessi brtt. meiri hluta efh.- og viðskn. er dæmi um vond vinnubrögð og slæma stefnu. Ég segi því nei.