1996-12-20 03:31:01# 121. lþ. 52.9 fundur 237. mál: #A Tryggingasjóður einyrkja# frv., félmrh.
[prenta uppsett í dálka] 52. fundur

[27:31]

Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson):

Herra forseti. Ég hef ekki miklar áhyggjur af því að það sem ég ætlaði mér með þessu frv. skili sér ekki, en ef aðrir geta hugsað með mér og fundið enn betri ráð þá fagna ég því bara. Það er að vísu rétt að taka fram að það er ekki mitt að ákveða eða gera tillögur um til hverra þetta frv. verður sent til umsagnar. Það er verkefni hv. félmn. Ég leyfði mér að láta þess getið áðan að ég teldi eðlilegt að samtök viðkomandi stétta fengju frv. til skoðunar.