Ferill 48. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1996. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 48 . mál.


405. Framhaldsnefndarálit



um frv. til fjáraukalaga fyrir árið 1996.

Frá meiri hluta fjárlaganefndar.



    Í ræðu formanns nefndarinnar við 2. umræðu um frumvarpið kom fram að fjallað hafði verið um nokkur mál í nefndinni sem frestað var til 3. umræðu að taka ákvörðun um. Umfjöllun um þau mál er nú lokið í nefndinni og leggur meiri hluti hennar til að frumvarpið verði samþykkt með þeim fimm breytingum við 3. gr. frumvarpsins sem gerðar eru tillögur um á þingskjali 406, en þær nema alls 133,3 m.kr. Einstakar breytingartillögur eru skýrðar í athugasemdum með álitinu, auk þess sem fjallað verður um þær í framsögu. Einnig skal þess getið að í samræmi við endurskoðaða tekjuáætlun fjármálaráðuneytisins er nú gert ráð fyrir í frumvarpinu að tekjur ríkissjóðs aukist um 1,2 milljarða króna frá fyrri áætlun og verði alls 127,2 milljarðar króna, sbr. breytingartillögu við 1. gr. frumvarpsins.
    Í töflunni hér að neðan er yfirlit um fjárheimildir ráðuneyta árið 1996 og þær breytingar sem meiri hluti nefndarinnar hefur gert tillögur um við 2. og 3. umræðu frumvarpsins. Bent skal á að ekki er gert ráð fyrir að allar heimildir ársins samkvæmt síðasta dálkinum í töflunni verði nýttar heldur færist álíka miklar heimildir til næsta árs og færðar eru á yfirstandandi ár í frumvarpinu, sbr. næstsíðasta dálkinn í töflunni.

Fjárheimildir ráðuneyta 1996.



Fjárlög

Frv. til

Breytingar-

Alls nýjar

Yfirfærðar

Heimildir


1996

fjáraukalaga

tillögur

heimildir

heimildir

ársins


Greiðslugrunnur

m.kr.

m.kr.

m.kr.

m.kr.

m.kr.

m.kr.




00 Æðsta stjórn      1.324
,1 129 ,0 42 ,7 1.495 ,8 20 ,2
1.516 ,0
01 Forsætisráðuneyti      516
,8 174 ,0
- 690 ,8 75 ,2 766 ,0
02 Menntamálaráðuneyti      19.281
,9 277 ,8 10 ,6 19.570 ,3 293 ,1
19.863 ,4
03 Utanríkisráðuneyti      1.874
,6 94 ,0
- 1.968 ,6 200 ,2 2.168 ,8
04 Landbúnaðarráðuneyti      6.980
,7 98 ,5 6 ,5 7.085 ,7 75 ,5
7.161 ,2
05 Sjávarútvegsráðuneyti      1.199
,9 44 ,5 2 ,3 1.246 ,7 71 ,6
1.318 ,3
06 Dóms- og kirkjumálaráðuneyti      6.024
,3 95 ,7 13 ,6 6.133 ,6 94 ,3
6.227 ,9
07 Félagsmálaráðuneyti      8.990
,6 160 ,2 21 ,0 9.171 ,8 257 ,7
9.429 ,5
08 Heilbr.- og tryggingamálaráðuneyti      50.014
,3 1.347 ,2 177 ,0 51.538 ,5 189 ,0
51.727 ,5
09 Fjármálaráðuneyti      17.895
,4 1.327 ,0 15 ,2 19.237 ,6 238 ,8
19.476 ,4
Innlausn spariskírteina     
-
10.100 ,0 - 10.100 ,0 - 10.100 ,0
10 Samgönguráðuneyti      8.256
,2 364 ,0 189 ,8 8.810 ,0 70 ,5
8.880 ,5
11 Iðnaðarráðuneyti      1.154
,8 19 ,2
- 1.174 ,0 19 ,7 1.193 ,7
12 Viðskiptaráðuneyti      198
,1
- - 198 ,1 -1 ,3 196 ,8
13 Hagstofa Íslands      158
,9
- - 158 ,9 2 ,2 161 ,1
14 Umhverfisráðuneyti      945
,5 15 ,3 5 ,9 966 ,7 17 ,5
984 ,2
Samtals      124.816
,1 14.246 ,4 484 ,6 139.547 ,1 1.624 ,2
141.171 ,3
Samtals án innlausnar      124.816
,1 4.146 ,4 484 ,6 129.447 ,1 1.624 ,2
131.071 ,3

SKÝRINGAR VIÐ EINSTAKAR BREYTINGARTILLÖGUR



04 Landbúnaðarráðuneyti


851    Greiðslur vegna smitsjúkdóma og salmonellumengunar. Lagt er til að heiti liðarins 04-851 verði Greiðslur vegna smitsjúkdóma og salmonellumengunar í stað Greiðslur vegna riðuveiki áður. Fjárveiting verður óbreytt en eins og nafnið gefur til kynna er gert ráð fyrir rýmri heimild til að ráðstafa henni.

07 Félagsmálaráðuneyti


999    Félagsmál, ýmis starfsemi. Farið er fram á 18 m.kr. viðbótarheimild í samræmi við ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að bjóða 25 flóttamönnum frá Bosníu hæli á Íslandi. Fjárheimildin er ætluð til að standa straum af útgjöldum Ísafjarðarbæjar og Rauða kross Íslands vegna komu flóttamannanna.

08 Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið


370    Sjúkrahús með fjölþætta starfsemi. Leitað er eftir 35 m.kr. viðbótarframlagi til þess að mæta rekstrarvanda sjúkrahúsa á landsbyggðinni, þar á meðal í Neskaupstað. Unnið er að lausn á fjárhagsstöðu sjúkrahúsanna en þeirri skoðun er ekki lokið. Gert er ráð fyrir að fjárveitingar til þeirra verði ákvarðaðar endanlega þegar gengið hefur verið frá samkomulagi við stjórnir sjúkrahúsanna um fjárframlög og starfsumfang og að þær verði greiddar út eftir því sem aðhaldsaðgerðir koma til framkvæmda.
381    Sjúkrahús og læknisbústaðir. Gerð er tillaga um 40,5 m.kr. aukafjárveitingu til uppgjörs á skuldum vegna framkvæmda við heilbrigðisstofnanir. Þar af eru 23 m.kr. vegna hjúkrunarheimilisins Hulduhlíðar, Eskifirði, 7,8 m.kr. vegna hjúkrunarheimilisins Kirkjubæjarklaustri, 5,8 m.kr. vegna hjúkrunarheimilisins Lundar, Hellu, og 3,9 m.kr. vegna heilsugæslustöðvar á Stokkseyri.

10 Samgönguráðuneyti


330    Vita- og hafnamálastofnun. Gerð er tillaga um 39,8 m.kr. viðbótarframlag á þessum lið. Framlagið er ætlað til að endurgreiða Hafnarsjóði Vestmannaeyja hlut ríkisins í bótum sem Hæstiréttur dæmdi sjóðinn til að greiða fyrirtækinu Hafverki í kjölfar málaferla varðandi dýpkunarframkvæmdir í Vestmannaeyjahöfn á árinu 1992.

Alþingi, 17. des. 1996.



Jón Kristjánsson,

Sturla Böðvarsson.

Arnbjörg Sveinsdóttir.


form., frsm.



Árni Johnsen.

Árni M. Mathiesen.

Hjálmar Jónsson.

Ísólfur Gylfi Pálmason.