Ferill 145. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1996. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 145 . mál.
407. Breytingartillaga
við frv. til l. um breyt. á l. nr. 113/1990, um tryggingagjald, með síðari breytingum.
Frá meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar (VE, GMS, PHB, VS, ÁRÁ).
Við bætist ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
Er sett hafa verið lög um tryggingasjóð einyrkja skulu tekjur af atvinnutryggingagjaldi einyrkja af reiknuðu endurgjaldi þeirra sem falla munu undir gildissvið þeirra laga renna í þann sjóð.