Ferill 262. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1996–97. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 262 . mál.


1236. Nefndarálit



um frv. til l. um Ríkisendurskoðun.

Frá sérnefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Sigurð Þórðarson ríkisendurskoðanda, Lárus Ögmundsson skrifstofustjóra og Láru Sverrisdóttur lögfræðing, frá Ríkisendurskoðun og Magnús Pétursson ráðuneytisstjóra og Þórhall Arason skrifstofustjóra, frá fjármálaráðuneyti. Þá bárust nefndinni umsagnir um málið frá Akureyrarbæ, Félagi löggiltra endurskoðenda, fjármálaráðuneytinu, Reykjavíkurborg sem og frá efnahags- og viðskiptanefnd.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með breytingum sem gerðar eru tillögur um á sérstöku þingskjali. Þær eru eftirfarandi:
    2. mgr. 1. gr. verði felld brott þar sem efni hennar kemur fram í 3. gr.
    Að horfið verði frá þeirri tilhögun 2. gr. að forsætisnefnd ákvarði launakjör ríkisendurskoðanda. Ákvörðun um launakjör hans heyri því áfram undir Kjaradóm. Þá þykir ákvæði um ráðningu starfsmanna eiga betur heima hér en í 2. mgr. 3. gr.
    Lagt er til að orðalag 3. gr. verði einfaldað og gert skýrara. Þá þykir nefndinni eðlilegra að tala um að það sé stofnunin Ríkisendurskoðun sem slík er sé engum háð í störfum sínum en ekki bara embættismaðurinn ríkisendurskoðandi.
    Lagt er til að orðalagi 1. málsl. 2. mgr. 6. gr. verði skipt upp í tvo málsliði. Annars vegar verði afdráttarlaust kveðið á um það að Ríkisendurskoðun annist endurskoðun reikninga stofnana sem reknar eru á ábyrgð ríkissjóðs eða ríkið á að hálfu eða meira. Hins vegar að í þeim tilvikum þegar ríkissjóður á helmings hlut eða meira í hlutafélagi, sameignarfélagi, viðskiptabanka eða sjóði, þar sem endurskoðandi er kjörinn á aðalfundi, skuli fulltrúi þess ráðherra sem fer með eignarhlut ríkisins í hlutaðeigandi fyrirtæki gera tillögu um að Ríkisendurskoðun endurskoði reikninga fyrirtækisins. Ekki þykir rétt að láta aðrar reglur gilda í þessum efnum þegar ríkið á í hlut heldur en almennt gilda samkvæmt félagarétti. Hins vegar er með þessu tryggt að Ríkisendurskoðun fari með endurskoðunarumboðið í þessum fyrirtækjum. Eftir sem áður mun Ríkisendurskoðun á grundvelli 4. gr. geta falið löggiltum endurskoðendum að endurskoða reikninga þessara aðila. Þannig liggur t.d. alveg ljóst fyrir að Ríkisendurskoðun mun áfram verða endurskoðandi Landsbanka Íslands og Búnaðarbanka Íslands eftir að þeir hafa verið gerðir að hlutafélögum um næstu áramót eða svo lengi sem ríkið á a.m.k. helmingshlut í hvorum banka fyrir sig. Þá eru lagðar til tvær aðrar breytingar á 6. gr. Annars vegar að í samræmi við hugtakanotkun í frumvarpi til laga um fjárreiður ríkisins verði talað um samninga um rekstrarverkefni þegar verið er að vísa í samninga sem í daglegu tali eru oft nefndir þjónustusamningar. Hins vegar að í ákvæðið komi heimild fyrir Ríkisendurskoðun til að innheimta af þeim ríkisaðilum sem um getur í 2. mgr. gjald sem nemur kostnaði við endurskoðun ársreikninga hvers aðila fyrir sig.
    Lagðar eru til lagfæringar á orðalagi 7. gr. á tveimur stöðum.
    Á 8. gr. eru einnig lagðar til nokkrar orðalagsbreytingar.
    Lagt er til að við 9. gr. bætist ákvæði sem tryggi að Ríkisendurskoðun geti framkvæmt stjórnsýsluendurskoðun hjá þeim aðilum sem um ræðir í 1. málsl. 2. mgr. 6. gr., enda þótt öðrum sé í sérlögum falin endurskoðun þeirra. Sem dæmi um þetta má taka fyrirtæki eins og Landsvirkjun.
    Þá eru lagðar til tvær breytingar á 11. gr. Annars vegar orðalagsbreyting í samræmi við breytingu á 3. og 7. gr. Hins vegar er lagt til að ákvæðið verði rýmkað þannig að það verði ekki bara fjárlaganefnd heldur allar nefndir þingsins sem geti haft frumkvæði að því að Ríkisendurskoðun beiti skoðunarheimildum sínum skv. 7. og 9. gr. gagnvart einstökum aðilum, þó þannig að um slíkar beiðnir fari eftir nánari reglum sem forsætisnefnd setur. Ríkisendurskoðun hefur samt alltaf ákvörðunarvaldið um það hvort hægt sé að verða við slíkum óskum sem fram koma.

Alþingi, 12. maí 1997.



Sturla Böðvarsson,

Jón Kristjánsson.

Ágúst Einarsson.


form., frsm.



Vilhjálmur Egilsson.

Ísólfur Gylfi Pálmason.

Pétur H. Blöndal.



Sighvatur Björgvinsson.

Ólafur Þ. Þórðarson.

Árni M. Mathiesen.



Kristín Ástgeirsdóttir.

Kristinn H. Gunnarsson.